Um Frú Pálína
Peysan Flold frá Guðrún Pálína Haraldsdóttir. Guðrún Pálína Haraldsdóttir hefur alla tíð verið skapandi, prjónað og saumað frá unga aldri. Íslenska ullin hefur alla tíð verið uppáhalds hráefni í sköpun hennar. Guðrún Pálína hefur sótt sér menntunar í gegnum tíðina á þessu sviði. Það var um 2010 sem Guðrún Pálína fór að merkja vörur sem hún hannaði og framleiddi undir merkið Frú Pálína. Frú Pálína.
Frú Pálína er hönnunar og handverks fyrirtæki sem hannar ullarvörur úr íslenskri ull. Íslenska ullin er spunnin og vélaprjónuð á Íslandi. Hver flík er síðan sniðin, saumuð og skreytt með þæfingu. Engar tvær flíkur eru eins þó að þær sé líkar, sem gerir vöru Frú Pálínu einstaka fyrir þig.
Frú Pálína hannar ullarvörur úr íslenskri ull. Spunnin og prjónuð ullarvoð verður að léttum og fallegum flíkum. Náttúruöflin eru innblástur að hönnuninni og eru verkin til heiðurs náttúrunni.
100% Íslensk ull
100% Íslenskt handverk
Made @ home
Um KIDKA Vörur
KIDKA peysur og fylgihlutir eru prjónaðar í prjónavélum. Ferlið við að þvo, bursta og gufa ullina gefur henni mjúka og góða áferð. Á sama tíma vantar ekki þann mikilvæga eiginleika að halda eigenda sínum heitum allt árið um kring.
Fötin og fylgihlutirnir koma á óvart með miklu úrvali af hönnun sem er innblásin af hefðbundnum norrænum mynstrum sem og nútíma tískustraumum og litum.
Allar KIDKA vörur eru framleiddar á Íslandi, í KIDKA ullarverksmiðjunni á Hvammstanga
Í notalegu verksmiðjubúðinni okkar getur þú keypt KIDKA ullarvörur okkar eða keypt handprjónaðar ullarvörur á góðu verði
KIDKA framleiðir vörur úr íslenskri ull, innblásnar af hefðbundnum íslenskum munstrum og nýjustu tísku.
Hvernig á að sjá um KIDKA vörur
Við mælum með handþvótt
Handþvótt:
- Leggið flíkina í bleyti í volgu vatni með ullarþvottaefni í 10 mínútur
- Þvoið vandlega
- Kreistu vatn varlega úr flíkinni, ekki nudda eða vinda úr
- Leggið flata til þerris á sléttu yfirborði
Ekki setja flíkurnar okkar í þurrkara.
Íslensk ull er náttúruleg afurð og þarf ekki að þvo oft. Oft dugar að hengja flíkina út til að lofta hana.









Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.